Ég varð nú að byrja með eitt blogg hérna. Þótt að ég sé bara 17 ára "barn" þá velta margar hugmyndir um í hausnum á mér daglega. Þannig mér fannst bara frábær hugmynd að deila því hérna á netinu.
Þótt að ég sé með myspace síðu eins og flest allir jafnaldrar mínir finnst mér stundum eins og þau skilji ekki hvert ég er að fara. Þannig ég ákvað bara að fara á þroskaðri stað til að fara með hugmyndirnar mínar.
Ég á nú eftir að uppfæra þessa síðu alveg helling, láta myndir og svoleiðis.
Ég vona nú bara að þið eigið eftir að njóta það sem ég hef uppá að bjóða fyrir ykkur hér ;)
Bloggar | 29.11.2007 | 13:50 (breytt kl. 13:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
